Framrúðuviðgerð

Hvernig virkar viðgerð á framrúðu?

Ef steinn lendir í framrúðunni getur myndast stjarna eða önnur skemmd sem virðist lítil í fyrstu. Með tímanum getur hún hins vegar þróast í stærri sprungu, sérstaklega í íslenskum aðstæðum þar sem hitabreytingar, holóttar götur og titringur geta haft áhrif á skemmdina.

Þess vegna borgar sig oft að láta skoða skemmdina sem fyrst.

Fyrsta skref: Mat á skemmdinni

Þegar bíllinn kemur á verkstæði er skemmdin skoðuð til að meta hvort hægt sé að gera við hana eða hvort skipta þurfi um framrúðuna.

Við matið er meðal annars litið til:

  • Stærðar skemmdarinnar
  • Staðsetningar hennar
  • Dýptar skemmdarinnar
  • Hvort sprunga hafi myndast
  • Hvort skemmdin sé innan sjónsviðs ökumanns

Hvernig fer viðgerðin fram?

Þegar talið er að hægt sé að gera við skemmdina felur ferlið almennt í sér eftirfarandi skref:

  1. Hreinsun skemmdarinnar
    Óhreinindi og raki eru fjarlægð úr skemmdinni svo viðgerðarefnið geti fyllt hana sem best.
  2. Sérhæft plastefni sett í skemmdina
    Sérstakt viðgerðarefni er sett í skemmdina til að fylla upp í hana og styrkja glerið.
  3. Loft fjarlægt úr sprungum og glufum
    Með sérhæfðum búnaði er loft fjarlægt úr skemmdinni til að auka líkur á árangursríkri viðgerð.
  4. Efnið hert
    Viðgerðarefnið er hert með sértækum verkfærum.
  5. Frágangur og skoðun
    Að lokum er yfirborðið jafnað og viðgerðin yfirfarin.

Hvað gerist eftir viðgerð?

Viðgerð getur hjálpað til við að:

  • Draga úr líkum á frekari útbreiðslu skemmdar.
  • Viðhalda styrk framrúðunnar.
  • Koma í veg fyrir að þörf verði á framrúðuskiptum síðar.

Hins vegar getur verið að ummerki skemmdarinnar sjáist enn að einhverju leyti eftir viðgerð.

Algengar spurningar

  • Hver er munurinn á viðgerð og framrúðuskiptum?

    Við viðgerð er einungis unnið með skemmdina sjálfa. Við framrúðuskipti er allri rúðunni skipt út.

  • Er alltaf hægt að gera við skemmd?

    Nei. Það fer eftir því hvernig skemmdin er, stærð og staðsetningu skemmdarinnar.

  • Hvenær ætti ég að láta skoða stjörnu eftir grjótkast?

    Sem fyrst eftir að skemmdin myndast.

  • Hvað kostar framrúðuviðgerð?

    Það er þér yfirleitt að kostnaðarlausu þar sem tryggingafélagið greiðir fyrir viðgerðina.

Maður í rauðri skyrtu gerir við framrúðu bíls í verkstæði. Hann er með hanska og öryggisgleraugu.

Gerum við stjörnu í framrúðu

Ef stjarnan í framrúðunni er minni en 100 krónu peningur þá getum við gert við hana og eindurheimt upprunalegan styrk glersins.

Rautt hakmerki innan í ljósrauðum hring.

Hraðþjónusta - aðeins 30 mínútur